Já maður er sko farin að telja niður, ekki
það að vinnan mín er æðisleg en þessar næturvaktir eru ekki
mitt uppáhald sem að glöggir lesendur hafa væntanlega tekið
eftir þessa vikuna.
Annars er fríið alveg óskipulagt, ættla nú bara
að reyna að slaka og klára að koma mér fyrir á nýja staðnum og svo
verður vikan undirlögð briddsi sem er mjög gaman.
Stelpan hefur áhveðið að skella sér á djamm á
morgun sem er nú mjög spes þar sem að ég er engin djammari í
mér.....langar bara að fara í bæinn og taka aðeins á því, rifja upp
danstaktana sem að ég lærði í dansskólanum á Blönduósi!
Sem
minnir mig á það að ég þoldi ekki þennan dansskóla, dauðleiddist
þetta svona svipað mikið og sunnudagaskólann, það reyndist móðir
minni þrautinni þingra að senda mig þangað og ég er nú eiginlega
alveg viss um það að séra Árni saknaði mín nú ekkert sérstaklega
þegar ég ekki mætti. Uff skondið að rifja þetta upp, eina sem að ég
græddi á því að mæta í sunnudagaskólann var að fá svona
Jesúsmyndir sem að ég seldi svo systir minni sem var mjög
samviskusöm að mæta og safna þessum myndum. hehe Vá hvað við vorum
rosalega ólíkar, hugsa nú að stundum hafi foreldrar mínar frekar
viljað eiga 10 eintök af henni heldur en 1 af mér. 
Jæja ættla að fara að hætta þessu bulli og að
gefnu tilefni hef ég áhveðið að enda þessa færslu á lagi sem að ég
lærði í sunnidagaskólanum til að sanna það að ég hlustaði
stundum!
VILTU VERÐA K
VILTU VERÐA K-R
VILTU VERÐA GLAÐUR
K-R-I-S-T-I-N-N
ÉG VEIT AÐ GUÐ HANN ELSKAR
MIG
OG HANN ELSKAR EINNIG ÞIG OG
ÞIG OG ÞIG.
VILTU VERÐA K
VILTU VERÐA K-R
VILTU VERÐA GLAÐUR
K-R-I-S-T-I-N-N
Munið svo bara Guð er góður!